Fotbolti.net
17.05.26 - 21:59
Kári Snorrason

Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið

Auglýsing
Fagnar marki sínu í dag.

Fagnar marki sínu í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR og Fram gerðu 2-2 jafntefli á Meistaravöllum fyrr í kvöld. Fyrirliði KR, Aron Sigurðarson, skoraði fyrra mark Vesturbæinga en Fótbolti.net ræddi við Aron að leik loknum.
„Leikurinn var svolítið kaflaskiptur. Fram-liðið er stórt og líkamlegt á móti litlu og vel spilandi liði KR. Leikurinn var svolítið þannig. Tvö góð lið að mætast. Auðvitað er leiðinlegt og súrt að fá á sig mark á 90. mínútu. En heilt yfir var það kannski sanngjarnt.“

KR-ingar voru án Arnórs Ingva, Finns Tómasar, Stefáns Árna og Ástbjarnar Þórðarsonar í kvöld. Aron var spurður hvort að það munaði ekki um þessa leikmenn.

„Það gerir það. Auðvitað koma hörkusterkir leikmenn inn en þetta eru fjórir leikmenn sem hafa spilað alla leikina sem detta út. Það væri högg fyrir hvert einasta lið. Frammistaðan var samt heilt yfir góð. Það er ekki hægt að væla yfir því, þetta er bara fótbolti og þetta gerist við öll lið.“


Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.