Fotbolti.net
17.05.26 - 19:24
Brynjar Ingi Erluson

Besta deildin: Endurkomusigur hjá KA gegn tíu FH-ingum - Jafnt hjá Keflavík og Stjörnunni

Jakob Snær var hetja KA gegn FH

Jakob Snær var hetja KA gegn FH

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA vann 2-1 endurkomusigur á FH í 7. umferð Bestu deildar karla í Kaplakrika í kvöld. Nýliðar Keflavíkur gerðu þá 1-1 jafntefli við Stjörnuna.
Akureyringar höfðu verið sterkari aðilinn gegn FH áður en heimamenn skoruðu gott mark á 32. mínútu. Hornspyrna datt fyrir Baldur Kára Helgason sem átti skot sem fór á Benjamín Bæring Þórsson sem skoraði.

FH-ingar reyndu að nýta sér meðbyrinn og fengu nokkur tækifæri til að bæta við fyrir hálfleikinn en tókst ekki. Þeir urðu fyrir miklu áfalli undir lok hálfleiksins er Kristján Snær Frostason sá beint rautt spjald fyrir að taka niður Hallgrím Mar Steingrímsson sem var að sleppa í gegn.

Manni færri komust FH-ingar í góða stöðu til að komast í tveggja marka forystu. Benjamín Bæring slapp í gegn í byrjun síðari hálfleiks en Steinþór Már Auðunsson sá við honum með laglegri vörslu.

Fáeinum mínútum síðar jafnaði Jeppe Pedersen með frábæru marki. Hann fékk boltann frá Kára Gautasyni, setti hann af varnarmanni og í netið.

Jakob Snær Árnason kom inn af bekknum hjá KA á 78. mínútu og átta mínútum síðar fullkomnaði hann endurkomuna er hann hirti frákast eftir að skot Snorra Kristinssonar fór af varnarmanni og á Jakob sem náði í sigurinn fyrir gestina.

KA, sem byrjaði tímabilið illa, er nú komið með þrjá sigra í röð og alls tíu stig eftir sjö leiki. FH er í næst neðsta sæti með aðeins tvö stig.

Jafnt í Keflavík

Keflavík og Stjarnan skildu jöfn, 1-1, á HS Orku-vellinum í Keflavík.

Heimamenn voru mun líklegri í byrjun og fengu aragrúa af færum til að komast yfir. Stjarnan átti fínan kafla eftir það áður en Keflavík tók forystuna með marki Muhamed Alghoul á 41. mínútu.

Þorlákur Breki Baxter fékk boltann hægra megin, kom boltanum inn á Alghoul sem átti slakt skot en nóg til þess að koma honum framhjá Árna Snæ Ólafssyni í markinu.

Stjörnumenn voru ekki lengi að jafna metin í þeim síðari. Andri Rúnar Bjarnason hljóp á nærsvæðið í hornspyrnu Jóhanns Árna Gunnarssonar og stýrði boltanum með hausnum í netið.

Keflvíkingar gerðu sig líklega á lokakafla leiksins. Stefan Ljubicic hélt áfram að skapa sér, en þetta var bara ekki hans dagur. Alghoul átti þá skot sem fór rétt framhjá markinu.

Liðin sættust á að deila stigunum. Keflavík er með 8 stig í 7. sæti en Stjarnan í 9. sæti með 7 stig.

FH 1 - 2 KA
1-0 Benjamín Bæring Þórsson ('32 )
1-1 Jeppe Pedersen ('54 )
1-2 Jakob Snær Árnason ('86 )
Rautt spjald: Kristján Snær Frostason, FH ('45) Lestu um leikinn

Keflavík 1 - 1 Stjarnan
1-0 Muhamed Alghoul ('41 )
1-1 Andri Rúnar Bjarnason ('49 )
Lestu um leikinn
Sæti Jóa Kalla hitnar en FH er aðeins með tvö stig úr sjö leikjum

Sæti Jóa Kalla hitnar en FH er aðeins með tvö stig úr sjö leikjum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Rúnar jafnaði metin fyrir Stjörnuna

Andri Rúnar jafnaði metin fyrir Stjörnuna

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.16+4243
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik15+826
5Valur16-619
6Keflavík16-819
7ÍBV15-716
8Stjarnan15-815
9ÍA15-1215
10KA15-814
11FH15-1112
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.