Manchester United er þessa stundina 3-2 yfir gegn Nottingham Forest í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni.
Luke Shaw og Matheus Cunha skoruðu fyrstu tvö mörkin en núna er Bryan Mbeumo búinn að bæta þriðja marki Rauðu djöflanna við eftir stoðsendingu frá Bruno Fernandes.
Portúgalski fyrirliði Man Utd er þar með búinn að stimpla sig í sögubækur ensku úrvalsdeildarinnar þar sem honum tókst að jafna stoðsendingametið. Fernandes er aðeins þriðji leikmaðurinn í sögu deildarinnar til að leggja upp 20 mörk á einu deildartímabili, eftir Kevin De Bruyne og Thierry Henry.
Þetta er magnað afrek hjá Bruno sem getur ennþá bætt metið með stoðsendingu á lokamínútunum á Old Trafford í dag eða í lokaumferðinni þegar Man Utd heimsækir Brighton í spennandi slag.


