Fotbolti.net
17.05.26 - 10:36
Ívan Guðjón Baldursson
Kjarninn

Byrjunarlið Man Utd og Forest: Sex breytingar frá síðustu helgi

Byrjunarlið Man Utd og Forest: Sex breytingar frá síðustu helgi
Canon

Mynd: EPA

Manchester United tekur á móti Nottingham Forest í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.
Michael Carrick gerir þrjár breytingar á byrjunarliði Man Utd sem gerði markalaust jafntefli við Sunderland um síðustu helgi þar sem Casemiro kemur aftur inn í byrjunarliðið fyrir kveðjuleik á heimavelli.

Þetta er síðasti leikurinn sem brasilíski miðjumaðurinn spilar á Old Trafford og fær því tækifæri til að kveðja stuðningsmenn eftir fjögur ár hjá félaginu.

Diogo Dalot og Bryan Mbeumo koma einnig inn í byrjunarliðið. Þeir taka stöður Noussair Mazraoui og Joshua Zirkzee frá því í Sunderland.

Vítor Pereira þjálfari Forest gerir einnig þrjár breytingar á byrjunarliðinu sínu sem gerði jafntefli við Newcastle um síðustu helgi.

Morgan Gibbs-White, Omari Hutchinson og Chris Wood koma inn í liðið og virðist Pereira breyta um uppstillingu. Hann virðist fara í fjögurra manna varnarlínu eftir að hafa notast við fimm manna varnarlínu gegn Newcastle.

Man Utd: Lammens, Dalot, Maguire, Martinez, Shaw, Casemiro, Mainoo, Fernandes, Amad, Cunha, Mbeumo.
Varamenn: Bayindir, Dorgu, Heaven, Malacia, Mazraoui, Yoro, Mount, Ugarte, Zirkzee.

Nott. Forest: Sels, Williams, Morato, Milenkovic, Netz, Anderson, Gibbs-White, Dominguez, Hutchinson, Wood, Igor Jesus.
Varamenn: Victor, Ortega, Sangaré, Awoniyi, Yates, Cunha, McAtee, Bakwa, Abbott.
Byrjunarlið Man Utd og Forest: Sex breytingar frá síðustu helgi
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.