Man Utd 3 - 2 Nott. Forest
1-0 Luke Shaw ('5 )
1-1 Morato ('53 )
2-1 Matheus Cunha ('55 )
3-1 Bryan Mbeumo ('76 )
3-2 Morgan Gibbs-White ('78 )
1-0 Luke Shaw ('5 )
1-1 Morato ('53 )
2-1 Matheus Cunha ('55 )
3-1 Bryan Mbeumo ('76 )
3-2 Morgan Gibbs-White ('78 )
Það var mikið fjör er Manchester United og Nottingham Forest kepptu fótboltaleik upp á stoltið í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Heimamenn voru sterkari í skemmtilegum fyrri hálfleik þar sem Luke Shaw tók forystuna snemma leiks eftir vandræðagang í varnarlínu gestanna frá Nottingham sem náðu ekki að hreinsa boltann úr eigin vítateig í þremur tilraunum. Shaw gerði vel að taka boltann niður og klára með marki.
Bæði lið fengu færi til að bæta marki við leikinn í fyrri hálfleik en tókst ekki, svo staðan var 1-0 í leikhlé.
Morato jafnaði metin snemma í síðari hálfleik með skalla eftir frábæra fyrirgjöf Elliot Anderson í kjölfar stuttrar hornspyrnu en Matheus Cunha endurheimti forystu heimamanna skömmu eftir að þeir tóku miðju. Boltinn hrökk fyrir Cunha eftir að marktilraun Bryan Mbeumo fór af tveimur varnarmönnum og gerði Brasilíumaðurinn vel að klára með marki. Leikmenn Forest vildu fá dæmda aukaspyrnu fyrir hendi á Mbeumo í aðdragandanum en fengu ekki.
Staðan var því orðin 2-1 og klúðraði Mbeumo dauðafæri eftir frábæra sendingu frá Bruno Fernandes sem var í leit að sinni 20. stoðsendingu á deildartímabilinu. Skömmu síðar tókst Fernandes að leggja upp með lágri fyrirgjöf sem rataði til Mbeumo og í þetta skiptið brást Kamerúnanum ekki bogalistin.
Gestirnir svöruðu þessu strax með mjög svipuðu marki á hinum endanum þar sem Morgan Gibbs-White potaði fyrirgjöf frá Elliot Anderson í netið.
Lokamínúturnar voru skemmtilegar og voru heimamenn líklegri til að bæta við marki heldur en gestirnir til að jafna. Bæði lið komust í góðar stöður en boltinn rataði ekki í netið svo lokatölur urðu 3-2.
Brasilíski miðjumaðurinn Casemiro var kvaddur að leikslokum. Hann byrjaði leikinn og fékk standandi lófaklapp þegar honum var skipt af velli. Svo var hann kvaddur af stuðningsmönnum eftir lokaflautið en hann hefur verið dyggur þjónn Rauðu djöflanna síðastliðin fjögur ár, eftir að hafa gert garðinn frægan með ógnarsterku liði Real Madrid.
Michael Carrick þjálfari hélt einnig ræðu að leikslokum til að þakka stuðningsmönnum og leikmönnum fyrir gott tímabil. Man Utd gerði magnaða hluti eftir að Carrick tók við liðinu í janúar og er búið að tryggja sér þriðja sæti úrvalsdeildarinnar.



