Fotbolti.net
17.05.26 - 18:39
Brynjar Ingi Erluson

England: West Ham þarf kraftaverk eftir tap gegn Newcastle

Nick Woltemade skoraði fyrsta deildarmark sitt síðan í febrúar

Nick Woltemade skoraði fyrsta deildarmark sitt síðan í febrúar

Canon

Mynd: EPA

Newcastle 3 - 1 West Ham
1-0 Nick Woltemade ('15 )
2-0 William Osula ('19 )
3-0 William Osula ('65 )
3-1 Taty Castellanos ('69 )
West Ham United er á barmi falls eftir 3-1 tap liðsins gegn Newcastle United í 37. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á St. James' Park í dag.

Hamrarnir þurftu sigur til að komast upp fyrir Tottenham í fallbaráttunni, en Newcastle var með annað í huga fyrir Lundúnaliðið.

Gestirnir voru ekkert að gera sér auðvelt fyrir. Mads Hermansen, markvörður liðsins, átti hræðilega sendingu á vinstri vænginn sem Harvey Barnes komst inn í, keyrði upp vænginn og inn á teiginn á Nick Woltemade sem skoraði sitt fyrsta mark síðan í febrúar.

Danski framherjinn William Osula bætti við öðru fjórum mínútum síðar er hann fékk sendingu inn fyrir frá Jacob Ramsey og setti boltann á milli fóta hjá Hermansen. Agalegur varnarleikur hjá Hömrunum.

Osula gerði annað mark sitt á 65. mínútu og aftur eftir slakan varnarleik gestanna. Joe Willock fékk boltann hægra megin í teignum, kom honum inn á Osula sem skoraði.

Taty Casellanos gerði sárabótarmark fyrir West Ham á 69. mínútu með sturluðu skoti á lofti rétt fyrir utan teiginn. Boltinn sveif yfir Nick Pope sem stóð framarlega í markinu.

Þetta var eina mark West Ham sem tapaði 3-1 og er áfram í 18. sæti með 36 stig, tveimur stigum á eftir Tottenham í fallbaráttunni. Newcastle er á meðan í 11. sæti með 49 stig og á tæknilega séð enn möguleika á Evrópusæti fyrir næstu leiktíð.

Tottenham getur fellt West Ham á þriðjudag er liðið heimsækir Chelsea á Stamford Bridge.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.