Fotbolti.net
17.05.26 - 21:27
Sölvi Haraldsson

Hemmi alsæll eftir dísætan sigur - „Ótrúlega fallegt að sjá þetta inni“

Auglýsing
Hemmi alsæll eftir dísætan sigur - „Ótrúlega fallegt að sjá þetta inni“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var ótrúlega fallegt að sjá þetta inni á seinustu sekúndu leiksins. Þetta var uppskera kannski fyrst og fremst fyrri hálfleiksins. Við vorum frábærir í fyrri hálfleik sem gaf okkur mikið sjálfstraust, við fórum sáttir inn í hálfleikinn. En svo mættum við ekki alveg nógu sprækir til leiks í seinni hálfleik.“ sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, eftir dramatískan 3-2 sigur á Breiðabliki í kvöld.
Lestu um leikinn: Valur 3 - 2 Breiðablik
„Við lendum 2-1 undir og þá reynir á karakterinn í liðinu og menn stigu upp. Við settum turbo á leikinn í restina og fáum töluvert af færum.“

Hvað gerðist í seinni hálfleik sem gerði það að verkum að Blikar tóku algjörlega yfir leikinn?

„Það var tvennt. Við vorum klaufar með boltann fyrri part seinni hálfleiksins, þeir náðu að þrýsta okkur vel niður og skoruðu tvö góð mörk sem við svöruðum svo sannarlega sem skilaði sér í nokkrum færum og frábærum mörkum.“

Það var gífurlega stórt fyrir Val að vinna í dag eftir kaflaskipta byrjun á mótinu og hvað þá á móti Breiðabliki.

„Þetta var lykilleikur fyrir okkur, við viljum vera með í efri hlutanum í toppbaráttunni. Þetta var algjört lykilatriði að ná í þrjú stig hjá okkur í dag það er alveg á hreinu.“

Viðtalið við Hemma má finna í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.