Fotbolti.net
17.05.26 - 22:11
Brynjar Ingi Erluson

Jackson-fagnið hans Osula fór í taugarnar á Keane - „Það er staður og stund fyrir allt“

Jackson-fagnið hans Osula fór í taugarnar á Keane - „Það er staður og stund fyrir allt“
Canon

Mynd: EPA

Danski sóknarmaðurinn William Osula skoraði tvö mörk er Newcastle United vann West Ham United, 3-1, í ensku úrvalsdeildinni í dag, en hann bauð upp á skemmtilegt fagn í leiknum sem féll ekki í kramið hjá öllum.
Osula tók fagnið eftir fyrra markið sem hann gerði í fyrri hálfleiknum.

Hann fékk hvítan hanska af hliðarlínunni og tók nokkur spor í anda fyrrum poppstjörnunnar Michael Jackson. Skemmtileg spor hjá Osula og virtust stuðningsmenn Newcastle njóta þess, en það gerði Roy Keane ekki.

Sparkspekingurinn er af elsta skólanum og var því alveg vitað að þetta fagn færi í taugarnar á honum.

„Ekki misskilja mig þetta eru alls ekki slæmar hreyfingar. Hann kann svo sannarlega að hreyfa sig, en það er staður og stund fyrir allt. Hann getur gert þetta á einhverjum skemmtistað í Newcastle í kvöld,“ sagði Keane á Sky.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.