Newcastle búið að setja verðmiða á Gordon - Barcola og Diomande orðaðir við Liverpool - Camavinga til Tottenham?
   sun 17. maí 2026 08:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Xabi Alonso tekur við Chelsea (Staðfest)
Xabi Alonso.
Xabi Alonso.
Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea er búið að staðfesta ráðningu Spánverjans Xabi Alonso. Hann mun taka við sem stjóri liðsins í sumar og skrifar undir fjögurra ára samning þess efnis.

Fjölmiðlamenn á Bretlandseyjum og víðar sögðu frá því í gær að Alonso væri búinn að samþykkja að taka við Chelsea.

Alonso hefur verið atvinnulaus síðan hann var rekinn frá Real Madrid í janúar síðastliðnum. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við spænska félagið síðasta sumar eftir að hafa gert frábæra hluti með Bayer Leverkusen í Þýskalandi.

„Chelsea er eitt stærsta félag heims og það fyllir mig stolti að taka við sem stjóri þessa frábæra félags," segir Alonso.

„Eftir samtöl mín við eigendahópinn og stjórnendur félagsins er ljóst að við deilum sama metnaði. Við viljum byggja upp lið sem getur keppt reglulega á hæsta stigi og barist um titla. Það eru miklir hæfileikar í leikmannahópnum og gríðarlegir möguleikar hjá þessu félagi og það verður mikill heiður fyrir mig að leiða það."

Alonso var á sínum tíma frábær leikmaður sem spilaði meðal annars fyrir Liverpool. Hann hefur verið orðaður við stjórastarfið hjá Liverpool en það er útlit fyrir að Arne Slot verði áfram við stjórnvölinn þar þrátt fyrir erfitt tímabil.
Slapp
banner