Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 17. júní 2021 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
4. deild: Markaregn í gærkvöldi - Skoraði fernu á korteri
Skoraði
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Mynd: Aðsend
Það fóru fimm leikir fram í fjórðu deildinni í gærkvöldi og litu tveir stórsigrar dagsins ljós, þar sem KH rúllaði yfir KFB í C-riðli á meðan Björninn setti 8 gegn KM í D-riðli.

Jón Örn Ingólfsson og Haukur Ásberg Hilmarsson settu sitthvora þrennuna í stórsigri KH sem deilir toppsæti C-riðilsins með Hvergerðingunum í Hamri. Hamar heimsótti Stokkseyri og vann grannaslaginn.

KH og Hamar eru með fjögurra stiga forystu á næsta félag, Skautafélag Reykjavíkur eða SR, sem lagði Smára að velli í gærkvöldi.

Magnús Stefánsson og Stefán Ingi Gunnarsson fóru þá á kostum er Björninn skoraði átta gegn KM og stökk upp í annað sæti D-riðils, fjórum stigum eftir toppliði KÁ sem rétt marði Mídas í gær. Stefán Ingi skoraði fernu á stundarfjórðungi í síðari hálfleik.

C-riðill:
KFB 0 - 9 KH
0-1 Jón Örn Ingólfsson ('3)
0-2 Haukur Ásberg Hilmarsson ('11)
0-3 Jón Örn Ingólfsson ('12)
0-4 Eyþór Örn Þorvaldsson ('26)
0-5 Haukur Ásberg Hilmarsson ('34)
0-6 Jón Örn Ingólfsson ('40)
0-7 Haukur Ásberg Hilmarsson ('51)
0-8 Sigfús Kjalar Árnason ('58)
0-9 Sigfús Kjalar Árnason ('64)

Stokkseyri 2 - 4 Hamar
0-1 Atli Þór Jónasson ('2)
1-1 Luis Lucas António Cabambe ('24)
1-2 Samuel Andrew Malson ('27)
1-3 Atli Þór Jónasson ('43)
2-3 Andri Einarsson ('50)
2-4 Bjarki Rúnar Jónínuson ('70)

SR 4 - 2 Smári
1-0 Hrafn Ingi Jóhannsson ('15)
2-0 Guðfinnur Þórir Ómarsson ('35)
3-0 Guðfinnur Þórir Ómarsson ('55)
3-1 Sindri Sigvaldason ('58)
3-2 Viktor Andri Henriksen ('76)
4-2 Tóbías Ingvarsson ('90)

D-riðill:
KÁ 1 - 0 Mídas
1-0 Birgir Þór Þorsteinsson ('70)

KM 0 - 8 Björninn
0-1 Magnús Stefánsson ('25)
0-2 Stefán Ingi Gunnarsson ('54)
0-3 Stefán Ingi Gunnarsson ('61)
0-4 Stefán Ingi Gunnarsson ('66)
0-5 Stefán Ingi Gunnarsson ('70)
0-6 Magnús Stefánsson ('76)
0-7 Jóhann Ingi Þórðarson ('81)
0-8 Magnús Stefánsson ('83)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner