Heung-Min Son mun skrifa undir nýjan samning við Tottenham að sögn blaðamannsins Fabrizio Romano.
Romano er afar virtur í fjölmiðlabransanum og eru heimildir hans oftar en ekki réttar.
Samkvæmt honum þá eru allir aðilar sannfærðir um að krotað verði undir. Son er einn besti leikmaður enska liðsins.
Líkur eru á að Harry Kane kveðji Tottenham í sumar en hin ýmis félög sína honum áhuga.
Tottenham hefur rætt um framlengingu við Son síðan í nóvember en hann hefur leikið þar frá árinu 2015.
Þessi 28 ára gamli leikmaður hefur skorað 70 deildarmörk í 197 leikjum fyrir Tottenham.
Athugasemdir