Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 17. júní 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fjórtán þjálfarar útskrifuðust með KSÍ A þjálfararéttindi
Sigurvin Ólafsson, þjálfari KV og aðstoðarþjálfari KR.
Sigurvin Ólafsson, þjálfari KV og aðstoðarþjálfari KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nýverið útskrifuðust 14 þjálfarar með KSÍ A þjálfararéttindi.

Námskeiðið hófst síðari hluta september 2019, en COVID-19 setti strik í reikninginn með þeim afleiðingum að hópurinn útskrifaðist ári á eftir áætlun.

Meðal þess sem gert var á námskeiðinu var leikgreining, tímabilaskipting, bóklegt og verklegt próf sem og hópavinna þar sem þjálfararnir fylgdust með hver öðrum að störfum í þeirra umhverfi undir eftirliti leiðbeinanda frá KSÍ. Hluti af námskeiðinu fór fram í viku námsferð til Kaupmannahafnar.

Eftirtaldir þjálfarar útskrifuðust:

Amir Mehica
Andri Ólafsson
Anton Orri Sigurbjörnsson
Benóný Þórhallsson
Hannes Þ. Sigurðsson
Jón Þórir Sveinsson
Ólafur Ingi Skúlason
Ray Anthony Jonsson
Sigmar Karlsson
Sigurður Þór Reynisson
Sigurvin Ólafsson
Sveinn Þór Steingrímsson
Jón Aðalsteinn Kristjánsson
Ingvi Sveinsson
Athugasemdir
banner
banner
banner