Leicester City er að styrkja hópinn sinn fyrir næstu leiktíð í ensku úrvalsdeildinni og Evrópudeildinni.
Mikið hefur verið rætt um komu Boubakary Soumare frá Frakklandsmeisturum Lille fyrir um 25 milljónir evra. Fabrizio Romano greinir frá því að allt sé frágengið þar og að skiptin verði staðfest í vikunni.
Auk Soumare er sóknarmaður á leið til Leicester. Félagið er búið að bjóða í Patson Daka, markavél RB Salzburg, og er Odsonne Edouard, sóknarmaður Celtic, næstur á óskalistanum.
Leicester hefur rétt misst af Meistaradeildarsæti á lokaspretti tímabilsins tvisvar í röð og ætlar Brendan Rodgers ekki að leyfa því að gerast aftur.
Athugasemdir