Badu: Þetta er mjög pirrandi


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Vestri fengu Ægi í heimsókn á Ísafjörð fyrr í dag. Leikurinn var partur af 15. umferð Lengjudeildarinnar og var spilaður mun fyrr en 15. umferðin sjálf vegna þess að Vestri spilar Evrópuleik á sama dag og 15. umferðin fer fram.
Vestri vann 3-2 sigur og fótbolti.net ræddi við Daniel Badu þjálfara Vestra eftir leikinn.
„Ég er sáttur að ná í þrjú stig en það var meira stress en það hefði þurft að vera í þessum leik". Sagði Badu eftir sigurinn gegn Ægi.
Vestri hefur átt í erfiðleikum með að halda stöðuleika í deildinni og hafa einungis einu sinni náð að tengja saman sigurleiki, hvað þarf Vestraliðið að gera til að ná meiri stöðuleika á leik sínum?
„Ég er sammála og þetta er mjög pirrandi, við höfum aldrei náð að hafa sama byrjunarliðið tvo leiki í röð í sumar og það er erfitt að halda dampi þegar það eru svona miklar breytingar. Við erum í betra standi núna en við vorum fyrr á tímabilinu og ég vona að þetta komi".
Vestri endurheimti Thibang Cafu Phete úr meiðslum fyrir leikinn en hann fór síðan út af í hálfleik, af hverju var það?
„Vorum bara að passa hann, hann var smá stífur aftan á læri og við vildum ekki taka neina sénsa með hann".
Þórður Gunnar Hafþórsson fór einnig meiddur af velli, það var eftir eftir markið sem hann skoraði. Í aðdraganda marksins fékk hann boltann í andlitið. Fór hann af velli vegna þess að hann fékk boltann í andlitið?
„Já það var einmitt út af því, Þórður hefur ekki klárað heilan leik í sumar og það er líka leikur á Sunnudaginn sem við vorum að hugsa um þegar við skiptum honum út af".
Vestri fengu heldur betur erfiðan andstæðing í undankeppni Evrópudeildarinnar í Qarabag frá Aserbaídsjan, hver voru fyrstu viðbrögð þín eftir að þú sást dráttinn?
„Þetta verður langt ferðalag sem við erum að fara í , en það er líka mjög spennandi að fá að spila þessa leiki".
Vestri mætir Aftureldingu á Sunnudaginn, hvernig ætlið þið að nálgast þann leik?
„Afturelding eru gott lið og við erum það líka, við ætlum að sýna hversu góðir við erum".
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum fyrir ofan.



