Sáttur Ívan Óli: Ég fór að grenja úr gleði

Ívans Óla Santos spilaði sinn fyrsta keppnisleik í tæplega þrjú ár

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ívans Óla Santos spilaði sinn fyrsta keppnisleik í tæplega þrjú ár

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍR hafa verið í miklu basli í upphafi tímabils og höfðu tapað 3 síðustu leikjum sínum fyrir þennan leik.
„Það er kominn tími sko, við erum ekki alveg búnir að fá allt of mikið af mörkum á okkur upp á síðkastið sko, en þetta var svona alvöru iðnaðarsigur, þannig að þetta var bara mjög flott.”
Þetta var fyrsti keppnisleikur í deild hjá Ívani Óla Santos í tæplega þrjú ár, eða í 1.005 daga. Hann kom inn á sem varamaður á 81. mínútu og tók það hann aðeins fjórar mínútur að láta til sín taka þegar hann skoraði sigurmark ÍR gegn sínu gamla félagi, Gróttu.
„Það var alltaf að fara að gerast. Ég einmitt sagði það við strákana á bekknum, ég ætlaði einmitt að skora í dag sko, þannig að það var bara geðveikt. Geðveikt þegar það gerðist og einmitt fór bara að grenja úr gleði áðan eftir leik. Þetta var bara geggjað”. sagði Ívan við fréttamann Fótbolti.net eftir leik.



