Fotbolti.net
17.06.26 - 18:25
Ívar Björgvinsson

Leiðinlegasta HM sögunnar

HM 2022 var eitt það skemmtilegasta í manna minnum.

HM 2022 var eitt það skemmtilegasta í manna minnum.

Canon

Mynd: EPA

Nú þegar Heimsmeistarakeppnin er hafin í Norður-Ameríku er fólk mikið að velta fyrir sér sögunni og gömlum keppnum sem eru þeim minnistæðar. Margir eru sammála um að seinustu keppnir hafa verið mjög fjörugar og heilt yfir skemmtilegar en hver ætli sé leiðinlegasta HM keppnin frá upphafi ef skoðað er tölfræðina?
HM 1990 er sú keppni þar sem lægsta markahlutfall í sögunni leit dagsins ljós. Einungis 2.21 mörk voru skoruð í leik að meðaltali en það hefur ekki enn verið toppað síðan þá. Lítið skemmtanagildi keppninnar var talið það alvarlegt að FIFA fór í naflaskoðun og reglubreytingar áttu sér stað sem tóku í gildi fyrir næsta mót. Eftir EM 1992 var markmönnum bannað að taka boltann upp með höndum eftir sendingu frá samherja en einnig fyrir HM 1994 var sigri í riðlakeppni veittur þrjú stig í stað einungis tveggja.

Vestur-Þýskaland vann keppnina, sem var haldin í Ítalíu, og er eftirlminnilegt að úrslitaleikur mótsins hafi verið einn sá leiðnilegasti frá upphafi. Leiknum lauk 1-0 eftir sigurmark úr vítaspyrnu seint í leiknum en sá leikur var fyrsti úrslitaleikur í sögu HM þar sem aðeins annað lið komst á blað en ekki bæði.

Ljóst er að þessar breytingar áttu eftir að skila sér ef litið er til næstu keppna. Fréttin er hluti af pistli sem birtist 13. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Viðtalið er hluti af pistli sem birtist 13. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

Markaskorun á HM í sögulegu samhengi
TENGT EFNI

Markaskorun á HM í sögulegu samhengi

Kasper Schmeichel er af mörgum talinn ástæða reglubreytingarinnar.

Kasper Schmeichel er af mörgum talinn ástæða reglubreytingarinnar.

Canon

Mynd: Ívar Björgvinsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.