Modric: Aldur er bara tala

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Hinn fertugi Luka Modric er að fara spila á sínu tíunda stórmóti (HM og EM) í kvöld en hann er í byrjunarliði Króatíu sem mætir Englandi klukkan 20.
Króatíska liðið hefur spilað frábærlega á síðustu heimsmeistaramótum en liðið hafnaði í 3. sæti fyrir fjórum árum og tapaði í úrslitum árið 2018 gegn Frakklandi. Modric vann Ballon d'Or verðlaunin það ár.

„Það er erfitt að segja hversu gott liðið er, við sjáum það á þessu heimsmeistaramóti. Við gerðum góða hluti í undankeppninni, spiluðum vel en nú er aðalatriðið þar sem við sjáum hvar við stöndum og hversu góðir við erum," sagði Modric.
„Ég hef mikla trú á þessu liði. Það eru margir ungir leikmenn og enn nokkrir gamlir. Aldur er bara tala. Ég sé það þannig. Fólk vill tala um það en fyrir mér er það ekki mikilvægt. Það er mikilvægt hvernig manni líður, hvað þú gerir á vellinum og aldur er bara tala."

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!