Fotbolti.net
17.06.26 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jói útherji

Ungur varnarmaður Man City á radar Barcelona

Vitor Reis.

Vitor Reis.

Canon

Mynd: EPA

Vitor Reis, varnarmaður Manchester City, er óvænt á óskalistanum hjá Barcelona í sumar.

Samkvæmt spænska miðlinum Diario SPORT hefur Katalóníustórveldið þegar hafið fyrstu viðræður um möguleg kaup eða lán á brasilíska miðverðinum.
Reis, sem kom til Manchester City frá Palmeiras í fyrra, var á láni hjá Girona á tímabilinu sem var að klárast og fékk hann þar tækifæri til að sýna sig í La Liga.

Barcelona hefur mikinn áhuga á að fá leikmanninn til félagsins, sérstaklega vegna hæfileika hans með boltann. Hansi Flick, stjóri Barcelona, og Deco, íþróttastjóri félagsins, eru sagðir vera miklir aðdáendur hans.

Katalónska félagið horfir helst til lánssamnings með kaupákvæði, en óvíst er hvort Manchester City sé tilbúið að samþykkja slíka lausn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.