Fotbolti.net
17.07.15 - 13:44
Magnús Már Einarsson

Casilla til Real Madrid í stað Casillas (Staðfest)

Kiko Casilla.

Kiko Casilla.

Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid hefur keypt markvörðinn Kiko Casilla frá Espanyol. Hinn 28 ára gamli Casilla kemur til Real viku eftir að Iker Casillas var seldur til Porto.

Casilla mun berjast við Keylor Navas um markvarðar stöðuna hjá Real Madrid á næsta tímabili.

Þetta þýðir að ólíklegt er að David Dea Gea komi til Real frá Manchester United í sumar en hann á einungis eitt ár eftir af samningi sínum við enska félagið.
Casilla var valinn í spænska landsliðið í fyrsta skipti í fyrra en frammistaða hans með Espanyol hefur vakið athygli.

Casilla spilaði á sínum tíma með yngri liðum Real Madrid.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.