Fotbolti.net
17.07.15 - 18:41
Alexander Freyr Tamimi

Fabian Delph í Manchester City (Staðfest)

Fabian Delph er orðinn leikmaður City.

Fabian Delph er orðinn leikmaður City.

Canon

Mynd: Getty Images

Ótrúleg félagaskiptasaga Fabian Delph er á enda, en Manchester City staðfesti í dag kaup sín á þessum öfluga miðjumanni Aston Villa.

Í síðustu viku virtist Delph vera á leið til City en hann hafnaði síðan félaginu og ætlaði að vera áfram hjá Aston Villa. Hann hefur greinilega dregið þá ákvörðun til baka og mun hann klæðast treyju City á næstu leiktíð.
„Delph er frábær leikmaður og ég hlakka til að vinna með honum,\" sagði Manuel Pellegrini, stjóri City.



„Hann hefur verið gríðarlega mikilvægur undanfarin tímabil hjá Aston Villa og er einn af bestu ungu miðjumönnum ensku úrvalsdeildarinnar.\"



Stuðningsmenn Aston Villa eru afar ósáttir með gang mála og úthúða hinum 25 ára gamla Delph á Twitter eftir að hafa hrósað honum í hástert í síðustu viku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.