Fotbolti.net
17.07.15 - 16:02
Magnús Már Einarsson

Josip Serdarusic í KA (Staðfest)

KA hefur fengið liðsstyrk.

KA hefur fengið liðsstyrk.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KA hefur samið við króatíska miðjumanninn Josip Serdarusic en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

<i>„Hann mun koma til með að styrkja KA-liðið enn fremur í komandi átökum í 1. deildinni og bikarnum,\"</I> segir á heimasíðua KA.
Josip spilar fremstur á miðjunni og lék síðast með NK Dugopolje í heimalandinu og þar á undan með úrvalsdeildarliðinu RNK Split.

Hann er 28 ára gamall og kemur til landsins á sunnudaginn og mun því vera orðinn klár í slaginn þegar að KA mætir Fjarðarbyggð næstkomandi fimmtudag á heimavelli.

KA er í 4. sæti í 1. deildinni en liðið mætir Fram á útivelli í 12. umferð deildarinnar á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.