17.07.15 - 16:30
Magnús Már Einarsson
Rúmensk landsliðskona í Fylki (Staðfest)

Andreea Laiu í leik með rúmenska landsliðinu.

Mynd: Getty Images

Rúmenska landsliðskonan Andreea Laiu hefur gengið til liðs við Fylki.
Andreea er 29 ára gömul en hún spilaði síðast í Rússlandi.
Á ferli sínum hefur hún einnig spilað með Apollon Limassol á Kýpur og CFF Clujana í heimalandi sínu.
Fyrr í vikunni kom miðjumaðurinn Aivi Belinda Luik til Fylkis en hún á landsleiki að baki með Ástralíu.
Rut Kristjánsdóttir og Margrét Björg Ástvaldsdóttir eru komnar aftur til Fylkis úr láni frá Haukum.
Marjani Hing-Glover er aftur á móti farin frá Fylki í Grindavík en hún náði ekki að stimpla sig inn í liðið í Árbænum.
Fylkir hefur verið á flugi í Pepsi-deild kvenna en liðið hefur unnið fjóra leiki í röð eftir sigur á Selfyssingum í vikunni.
Þá mætir liðið Stjörnunni í undanúrslitum Borgunarbikarsins í lok mánaðarins.