Fotbolti.net
17.07.18 - 12:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Draumaliðsdeild Toyota - Markaðurinn lokar 17

Fanndís er mætt í Draumaliðsdeildina.

Fanndís er mætt í Draumaliðsdeildina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Kvennaboltinn
Tíunda umferðin í Pepsi-deild kvenna hefst í dag.
Þrír leikir eru í kvöld og hefjast fyrstu leikirnir klukkan 18:00. Markaðurinn í Draumaliðsdeild Toyota lokar klukkutíma áður en fyrstu leikirnir hefjast.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Leikurinn í stuttu máli
Þú færð 100 milljónir króna til að kaupa 15 leikmenn úr Pepsi-deildinni. Leikmennirnir fá síðan stig fyrir frammistöðu sína á vellinum en mörg atriði eru tekin inn í reikninginn í stigagjöfinni.

Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.

Aðalverðlaunin eru glæsileg en Toyota gefur ferð fyrir tvo á leik í enska boltanum með Gaman ferðum.

Er wildcard málið núna?
Gerðu breytingar á þínu liði í tæka tíð! Ein breyting er að venju leyfileg á milli umferða en hægt er að gera fleiri breytingar á liði sínu með því að nota „wildcard\" sem nota má einu sinni yfir tímabilið. Mótið er hálfnað. Ætlar þú að nota „wildcard\" núna?

Leikir umferðarinnar:

Í dag:
18:00 Þór/KA-Grindavík (Þórsvöllur)
18:00 KR-ÍBV (Alvogenvöllurinn)
19:15 FH-HK/Víkingur (Kaplakrikavöllur)

Á morgun:
19:15 Breiðablik-Stjarnan (Kópavogsvöllur)
19:15 Selfoss-Valur (JÁVERK-völlurinn)

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.