Það er mikil spenna bæði á toppi og botni 2. deildarinnar. Heil umferð fór fram í kvöld.
Lestu um leikinn: Haukar 1 - 2 Njarðvík
Njarðvík er komið með níu tær upp í Lengjudeildina en liðið sigraði Hauka í hörku leik. Leikurinn var heimaleikur Hauka en fór fram á Origo vellinum á Hlíðarenda þar sem það er verið að leggja nýtt gras á Ásvöllum.
Útlitið var gott fyrir Njarðvík strax á 10. mínútu þegar liðið fékk vítaspyrnu en Milos Peric varði spyrnu Oumar Diouck. Örfáum mínútum síðar fengu Haukar vítaspyrnu og Kristófer Dan Þórðarson nýtti hana og kom Haukum í forystu.
Undir lok fyrri hálfleiks fengu Njarðvíkingar hornspyrnu, Ari Már Andrésson stökk manna hæst og skallaði boltann í netið. 1-1 í hálfleik.
Sölvi Björnsson kom inná eftir rúmlega klukkutíma leik í lið Njarðvíkur eftir að Kenneth Hogg virtist slasast illa. Hann tryggði Njarðvíkingum stigin þrjú með marki stuttu síðar.
Völsungur vann Ægi 2-1 með sigurmarki í uppbótartíma á meðan Víkingur Ó og Þróttur skyldu jöfn 3-3. Það þýðir að bilið milli Þróttara í 2. sæti og Völsungs í 3. sæti er aðeins 4 stig þegar fimm umferðir eru eftir.
Magni er í slæmri stöðu á botninum eftir 2-1 tap gegn KF. Þá valtaði Höttur/Huginn yfir KFA.
Haukar 1 - 2 Njarðvík
0-0 Oumar Diouck ('10, misnotað víti)
1-0 Kristófer Dan Þórðarson ('14, víti)
1-1 Ari Már Andrésson ('37)
1-2 Sölvi Björnsson ('73)
Reynir S. 0 - 0 ÍR
Víkingur Ó. 3 - 3 Þróttur R.
0-1 Ernest Slupski ('20 )
1-1 Andri Þór Sólbergsson ('42 )
2-1 Luis Romero Jorge ('49 )
3-1 Andri Þór Sólbergsson ('58 )
3-2 Hinrik Harðarson ('69 )
3-3 Hinrik Harðarson ('73 )
Magni 1 - 2 KF
0-1 Sævar Gylfason ('31 )
1-1 Guðni Sigþórsson ('36 )
1-2 Sævar Þór Fylkisson ('55 )
Völsungur 2 - 1 Ægir
1-0 Rafnar Máni Gunnarsson ('7 )
1-1 Anton Breki Viktorsson ('79 )
2-1 Áki Sölvason ('90 )
KFA 0-5 Höttur/Huginn
0-1 Matheus Bettio Gotler ('14 )
0-2 Rafael Alexandre Romao Victor ('22 )
0-3 Eiður Orri Ragnarsson ('39 )
0-4 Matheus Bettio Gotler ('69 )
0-5 Unnar Birkir Árnason ('87 )
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |