Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
Davíð Smári: Gaman að byrja þetta með alvöru hvelli
Venni: Honum líður vel og er ekki að fara neitt
Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
„Vorum ekkert sérlega ánægðar með það“
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
   fim 17. september 2020 18:56
Anton Freyr Jónsson
Eiður Smári: Víkingarnir settu okkur undir mikla pressu
Eiður Smári þjálfari FH.
Eiður Smári þjálfari FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Virkilega sáttur við þrjú stig. Ekki alveg nógu ánægður með byrjunina á leiknum, það var eins og það væri smá slen í liðinu, áttum fínustu kafla og sérstaklega undir lok seinni hálfleiks þurftum við virkilega að hafa fyrir því og berjast fyrir hverjum einasta bolta sem er að koma inn í okkar teig. Víkingarnir settu okkur undir mikla pressu og sem betur stóðumst við hana." voru fyrstu Eiðs Smára þjálfara FH eftir sigurinn á Víkingum í Kaplakrika

Lestu um leikinn: FH 1 -  0 Víkingur R.

„Leikurinn spilaðist kannski ekki alveg eins og við settum hann upp en úrslitin kærkomin."

Það er leikið þétt í deildinni um þessar mundir. Fann Eiður fyrir einhverju þreytumerki í FH liðinu í dag?

„Mér fannst við sjá það aðeins og það kannski undirstrikaði það að menn eins Pétur sem tognaði aðeins í upphitun. Það er eitthvað um smávægileg meiðsli eftir leikinn og það sýnir bara að þetta tekur sinn toll á menn en við vonum að við getum haft alla sem hressasta fyrir næsta leik því við þurfum virkilega á öllum að halda, sérstaklega á næstu vikum."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan þar sem hann ræðir til að mynda um meiðsli Daníels Hafsteinssonar
Slapp
banner
banner
banner