fös 17. september 2021 22:52
Victor Pálsson
3. deild: Augnablik vann lokaleikinn
Úr leik hjá Augnablik.
Úr leik hjá Augnablik.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Augnablik 2 - 1 Dalvík/Reynir
1-0 Breki Barkarson('24)
1-1 Gunnar Örvar Stefánsson('48)
2-1 Breki Barkarson('56)

Augnablik og Dalvík/Reynir spiluðu sinn síðasta deildarleik á tímabilinu í kvöld er liðin áttust við í 22. umferð.

Bæði þessi lið voru örugg um sæti sitt í 3. deildinni og var því um lítið að keppa nema stoltið.

Augnablik fagnaði sigri í þessari viðureign en Breki Barkarson skoraði bæði mörk liðsins í 2-0 heimasigri.

Augnablik er í níunda sæti deildarinnar með 26 stig og er Dalvík/Reynir í því sjöunda með 29.
Athugasemdir
banner
banner
banner