Fotbolti.net
17.09.21 - 20:55
Victor Pálsson

England: Jafnt í fjörugum föstudagsleik

England: Jafnt í fjörugum föstudagsleik
Canon

Mynd: Getty Images

<b>Newcastle 1 - 1 Leeds</b>
0-1 Raphinha ('13 )
1-1 Allan Saint-Maximin ('44 )
Það fór fram mjög fjörugur leikur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en spilað var á St. James' Park í Newcastle.

Fyrsti leikur umferðarinnar olli engum vonbrigðum en honum lauk þó með 1-1 jafntefli er Leeds kom í heimsókn.

Raphinha kom Leeds yfir á 15. mínútu en hann átti þá fyrirgjöf sem endaði í marki Newcastle eftir skemmtilega hreyfingu Rodrigo.

Besti maður vallarins í kvöld var Allan Saint-Maximin hjá Newcastle og tókst honum að jafna metin á 44. mínútu með góðu skoti innan teigs.

Saint-Maximin fékk boltann á fínum stað og fíflaði varnarmenn Leeds áður en hann þrumaði knettinum í netið.

Bæði lið fengu svo sannarlega tækifærin til að bæta við en mörkin urðu ekki fleiri og jafntefli niðurstaðan í þó skemmtilegum leik.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.