María Catharina Ólafsdóttir Gros og stöllur hennar í Linköping biðu ósigurs gegn Djurgården, 5-2, í sænsku úrvalsdeildinni í dag, en Linköping er nú án sigurs í síðustu fimm leikjum sínum.
Linköping hafnaði í 3. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð en hefur ekki tekist að halda dampi á þessu tímabili.
María er í föstu hlutverki í liði Linköping síðan hún kom frá Fortuna Sittard í sumar.
Liðið hefur þó átt erfitt uppdráttar á þessu tímabili og er nú án sigurs í síðustu fimm deildarleikjum.
Eftir tapið í dag er liðið í 10. sæti með 22 stig þegar sjö umferðir eru eftir af tímabilinu.
Athugasemdir