Fotbolti.net
17.09.26 - 19:17
Brynjar Ingi Erluson

Hollywood-leikararnir gerðu grín að keppinautum sínum

Hollywood-leikararnir gerðu grín að keppinautum sínum
Canon

Mynd: Wrexham AFC

Rob McElhenney og Ryan Reynolds, eigendur og stjórnarformenn velska félagsins Wrexham, gerðu létt grín að Southampton og þremur öðrum félögum á samfélagsmiðlum í dag.
Hollywood-leikararnir voru að auglýsa Firefox-vafrann og lögðu þar áherslu á friðhelgi einkalífsins, en merki vafrans verður framan á treyjum Wrexham næstu árin.

„Við viljum sérstaklega tala um hvernig best sé að koma í veg fyrir að njósnarar sjái það sem þú ert að gera... á netinu,“ sagði McElhenney áður en hann hélt áfram:

„Þessi skilaboð eiga ekki bara við um Wrexham, eða Oxford, Ipswich eða Middlesbrough.“

Middlesbrough komst áfram í úrslitaleik umspilsins um sæti í B-deildinni þrátt fyrir tap gegn Southampton, en síðarnefnda félagið var gripið við njósnir á æfingasvæði andstæðingsins og dæmt úr leik.

Ipswich og Oxford höfðu einnig verið gripin við sambærilegt athæfi fyrr á tímabilinu.

Myndbandinu lauk síðan með skoti að Southampton. McElhenney leit á símann hjá Reynolds og spurði hvort þar væri verið að fylgjast með æfingu félagsins.

„Er þetta æfing hjá Southampton?“ spurði McElhenney.

„Nei, þetta er pikkilboltalið Southampton,“ svaraði Reynolds og vísaði þar augljóslega í njósnamálið sem varð til þess að Southampton var dæmt úr umspilinu.

Wrexham leikur í B-deildinni ásamt Southampton, en Ipswich komst upp í úrvalsdeildina á meðan Oxford féll niður í C-deildina.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.