Fotbolti.net
17.09.26 - 17:50
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Innbyrðir lyf sem eru á bannlista - Snýr aftur eftir fjórar vikur

Innbyrðir lyf sem eru á bannlista - Snýr aftur eftir fjórar vikur
Canon

Mynd: EPA

Skoski miðjumaðurinn Scott McTominay getur í fyrsta lagi snúið aftur í leik með Napoli eftir 28 daga, að sögn Giovanni Manna, yfirmanns íþróttamála hjá ítalska félaginu.
Á dögunum gekkst McTominay undir vel heppnaða hjartaaðgerð vegna hjartsláttartruflana og hefur batinn gengið vel.

Nú tekur við tveggja vikna hvíld áður en hann fer í sérstakt endurhæfingarprógram.

„Hann þarf 28 daga til að öðlast keppnisrétt á ný þar sem hann er á blóðþynningarlyfjum sem eru á bannlista. Hann þarf því að hvíla í tvær vikur áður en hann getur hafið æfingar án líkamlegrar snertingar í tvær til þrjár vikur til viðbótar.“

„Þetta er áætlaður tími fram að endurkomu en hann gæti þurft lengri tíma. Ef einhver bakslög koma upp tökum við á þeim. Við ákváðum þetta líka til að gefa honum nægan tíma til að verða klár fyrir október og nóvember, þegar við spilum níu leiki,“
sagði Manna.

Skotans er sárt saknað hjá Napoli en hann kom að átján mörkum á síðustu leiktíð og var valinn í lið ársins annað árið í röð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.