Fjórir leikir fara fram í Seríu A í dag en nýliðar Crotone spila við Juventus.
Napoli og Atalanta eigast við í fyrsta leik dagsins en hann hefst klukkan 13:00.
Grannaslagur Inter og AC Milan hefst þá klukkan 16:00 og virðist Zlatan Ibrahimovic klár í að spila eftir að hafa verið frá vegna kórónaveirunnar.
Sampdoria spilar við Lazio á sama tíma áður en Crotone spilar við Juventus en Cristiano Ronaldo verður ekki með þar sem hann er með veiruna og því í sóttkví.
Leikir dagsins:
13:00 Napoli - Atalanta
16:00 Inter - Milan
16:00 Sampdoria - Lazio
18:45 Crotone - Juventus
Athugasemdir