Ágúst Gylfason, þjálfari Breiðabliks var sáttur eftir sigur sinna manna á FH í Bosemótinu í dag. Lokatölur 2-1, Breiðablik í vil.
„Fyrsti leikur í undirbúningstímabilinu og bara gott að fá sigur í hann," voru fyrstu viðbrögð Gústa eftir leikinn í dag.
„Fyrsti leikur í undirbúningstímabilinu og bara gott að fá sigur í hann," voru fyrstu viðbrögð Gústa eftir leikinn í dag.
„Við vorum svolítið að testa nýtt kerfi, 3-4-3 og sjá hvernig það virkaði, og það gekk fínt. Liðin voru ekki með sín sterkustu lið og eins og sást þá var kannski smá haustbragur á þessu en bara fínt að fá sigur í fyrsta leik. Við spilum við HK í næsta leik í Kórnum og ég hvet fólk til að mæta þangað, það verður skemmtileg rimma"
Eins og fyrr segir spilaði Breiðablik 3-4-3 leikkerfið í dag en Gústi spilaði það einnig í bikarúrslitunum gegn Stjörnunni í sumar.
„Við erum með menn sem að henta inn í þetta kerfi. Við erum með frábæra hafsenta og góða vængbakverði þannig þetta er klárlega möguleiki fyrir næsta sumar."
„Við spiluðum 4-5 leiki í þessu kerfi í sumar og afhverju ekki að prófa það og halda áfram að þróa það."
Ágúst er ánægður með fyrstu vikurnar á undirbúningstímabilinu.
„Þetta hafa bara verið góðar vikur, skemmtilegar og mikið af spili. Við erum bara að koma mönnum í gírinn og svo er þetta frábæra mót sem er í kjölfarið, æfingaleikir sem að skipta einhverju máli."
Ágúst segir lítið að frétta af leikmannamálum Blika þessa stundina.
„Nei í rauninni ekki. Við höfum verið að reyna við þessa bita sem hafa verið á markaðnum en því miður höfum við ekki náð þeim, en það eru einhverjir fleiri sem við reynum að ná. Við erum alveg rólegir í þessum málum."
„Við erum með opin augun og það verða vonandi einhverjar styrkingar fyrir mót en eins og ég segi þá erum við ekki hræddir við eitt né neitt. Hópurinn lítur bara mjög vel út."
„Okkur vantar í raun ekki í neina stöðu. Við erum ekkert að leita að neinum sérstökum stöðum, okkur vantar bara styrkingu og helst þá bara styrkingu inn í byrjunarliðið, það væri best. Við erum ekkert að örvænta."
Viðtalið við Gústa má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir