Fotbolti.net
17.11.26 - 14:07
Elvar Geir Magnússon

Pochettino mælir með því við Guardiola að taka við Bandaríkjunum

Mauricio Pochettino.

Mauricio Pochettino.

Canon

Mynd: EPA

Mauricio Pochettino mælir með því við Pep Guardiola að taka við landsliðsþjálfarastarfi Bandaríkjanna ef honum verður boðið það.

Pochettino hættir formlega sem þjálfari Bandaríkjanna á morgun til að taka við stjórastarfinu hjá Manchester United. Hann stýrir síðasta leik sínum með Bandaríkjunum í kvöld, seinni leiknum gegn Haítí í 8-liða úrslitum Concacaf Þjóðadeildarinnar.
Guardiola ætlar ekki að taka við bandaríska landsliðinu
TENGT EFNI

Guardiola ætlar ekki að taka við bandaríska landsliðinu

Guardiola hætti sem stjóri City í maí og hefur verið talað um að Bandaríkin hafi áhuga á að fá hann til að taka við af Pochettino.

„Ég myndi ráðleggja Guardiola að taka starfið ef það býðst. Þetta er fullkominn tími til að taka við. Hér eru góðir leikmenn sem passa við hans stíl," segir Pochettino sem hefur verið að gefa ungum og efnilegum leikmönnum tækifæri að undanförnu.

Fyrsti leikur Pochettino sem stjóri United í ensku úrvalsdeildinni er útileikur gegn Liverpool á Anfield á sunnudaginn.
Pep Guardiola.

Pep Guardiola.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.