Fotbolti.net
17.11.26 - 10:42
Elvar Geir Magnússon

Stjóri Andra Lucasar lætur af störfum vegna heilsufarsvandamála

Tony Mowbray.

Tony Mowbray.

Canon

Mynd: Blackburn Rovers

Tony Mowbray, stjóri Blackburn Rovers, hefur látið af störfum hjá Championship-liðinu vegna heilsufarsvandamála. Andri Lucas Guðjohnsen spilar með Blackburn og hefur verið funheitur undir hans stjórn.

Sextíu og tveggja ára gamall sneri Mowbray aftur til félagsins í júní eftir að hafa þjálfað Blackburn í fimm ár, á árunum 2017 til 2022.
Mowbray hafði áður sagt skilið við fótboltann á meðan hann var stjóri Birmingham City í byrjun árs 2024 eftir heilsufarsvandamál og síðar greindi hann frá því að hann hefði verið í meðferð við krabbameini í ristli.

„Ég er ótrúlega stoltur af þessum hópi leikmanna. Þeirra hollusta og fagmennska hefur gefið okkur eftirminnilegar frammistöður og sigra, og ég hef elskað að starfa með þeim,“ segir Mowbray í yfirlýsingu.

Mowbray hefur gjörbreytt Blackburn á þessu tímabili, eftir að hafa sveiflast í kringum fallsætin stóran hluta síðasta tímabils áður en þeir enduðu að lokum í 20. sæti í Championship-deildinni og fimm stigum fyrir ofan fallsætið. Þeir eru nú í 13. sæti í Championship-deildinni


Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Stjóri Andra Lucasar lætur af störfum vegna heilsufarsvandamála
Canon

Mynd: Blackburn Rovers

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.