Fotbolti.net
17.11.26 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Þetta er hans staða að missa núna"

Hákon Rafn Valdimarsson.

Hákon Rafn Valdimarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Vegna meiðsla Elíasar Rafns Ólafssonar, þá spilaði Hákon Rafn Valdimarsson alla leiki Íslands í Þjóðadeildinni.

Það er ekki annað hægt að segja en að Hákon hafi staðið sig mjög vel en samkvæmt einkunnagjöf Fótbolta.net var hann besti maður liðsins í keppninni.
Meðaleinkunnir Íslands - Hver var bestur í Þjóðadeildinni?
TENGT EFNI

Meðaleinkunnir Íslands - Hver var bestur í Þjóðadeildinni?

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, var í gær spurður að því hvort Hákon væri núna búinn að grípa stöðu markvarðar hjá landsliðinu.

„Þetta er hans staða að missa núna," sagði Arnar. „Það er fullkomlega eðlilegt eftir hans frammistöðu. En þetta er auðvitað lúxusstaða fyrir okkur. Pælingin í fjögurra leikja glugganum var sú að ef báðir væru heilir myndum við skipta leikjunum á milli þeirra, því ég vil að þeim báðum gangi vel."

„Ég held að það sé mjög gott fyrir íslenskan fótbolta að eiga tvo markmenn sem eru að spila svona vel. Hákon hefur gert allt upp á tíu. Hann hefur breytt töpum í jafntefli og jafnteflum í sigra. Það er einmitt það sem góðir markmenn eiga að gera og þurfa að gera. Við erum því í lúxusvandamáli hvað það varðar."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.