Fotbolti.net
17.11.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson

Ancelotti svarar Romario: Hann talar rosalega mikið

Carlo Ancelotti

Carlo Ancelotti

Canon

Mynd: EPA

Carlo Ancelotti, þjálfari brasilíska landsliðsins, hefur svarað harðri gagnrýni brasilísku goðsagnarinnar Romario eftir 3-2 tapið gegn Japan á dögunum.
Kominn með nóg af Ancelotti - „Pakkaðu í töskur og farðu!“
TENGT EFNI

Kominn með nóg af Ancelotti - „Pakkaðu í töskur og farðu!“

Romario sagði Ancelotti að pakka saman og fara eftir tapið og taldi Ítalann mun betur settan í félagsliðaboltanum.

Ancelotti hefur ekki náð þeim árangri sem vonast var eftir síðan hann tók við Brasilíu, en liðið féll úr leik í 16-liða úrslitum HM og hefur hann þegar tapað fimm af þeim 21 leik sem hann hefur stýrt.

Ítalski þjálfarinn segir Romario hafa fullan rétt á sínum skoðunum, en gat þó ekki stillt sig um að senda honum smá skot til baka.

„Það er málfrelsi og í lýðræðislegu landi geta allir tjáð skoðanir sínar. Romario tjáði sína og það er réttur sem allir hafa hvort sem það séu lygar, sannleikur eða steypa. Sannleikurinn er sá að Romario talar rosalega mikið og það er réttur hans,“ sagði Ancelotti.

Brasilía mætir Singapúr í hádeginu í dag í síðasta leik sínum í þessu landsliðsverkefni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.