Fotbolti.net
17.11.26 - 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sýndi ótrúlegan karakter - „Fór að elska þann leiðangur"

Daníel Leó Grétarsson.

Daníel Leó Grétarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Daníel Leó Grétarsson er orðinn einn fyrsti maður á blað þegar kemur að íslenska landsliðinu.

Daníel Leó hefur vaxið gríðarlega á síðustu árum og er í dag mjög mikilvægur fyrir íslenska landsliðið. Óvíst var hvort að hann myndi spila núna í glugganum með íslenska landsliðinu þar sem dóttir hans fór í stóra aðgerð, en hann var mættur og stóð sig með prýði.
Dóttir Daníels fór í stóra aðgerð - „Þurfti að fá að vera pabbi og eiginmaður“
TENGT EFNI

Dóttir Daníels fór í stóra aðgerð - „Þurfti að fá að vera pabbi og eiginmaður“

„Það er ótrúlegt hvað hann hefur gert. Það gekk mikið á í fjölskyldulífi hans en hann sýndi ótrúlegan karakter. Sem betur fer gekk allt vel með dóttur hans," sagði Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, á fréttamannafundi í gær.

„Það var frábært að fá hann til liðs við okkur og hann var tilbúinn að spila. Við þurftum svo sannarlega á honum að halda þar sem við vorum í vandræðum með meidda leikmenn og leikmenn í leikbanni."

Daníel er í stóru hlutverki í leikplani Íslands. Í gær var pressað út um allan völl og þar setti hann tóninn úr hjarta varnarinnar.

„Hann er búinn að þróast í einn mikilvægasta leikmann liðsins. Það tók smá tíma fyrir hann og aðra varnarmenn að átta sig á því að ég vildi að þeir stigu ofar, tækju sinn mann og ynnu návígin. Eftir að hann skildi það fór hann að elska þann leiðangur að vinna návígi og taka sinn mann úr umferð."

„Hann er líka orðinn miklu betri á boltann en margir gera sér grein fyrir. Flestar sóknir okkar hefjast í rauninni með hans framlagi," sagði Arnar en á einum tímapunkti í leiknum var Daníel kominn í pressu við vítateig andstæðingsins.

„Já, þetta er bara nútímafótboltinn. Um leið og menn ýta á pressutakkana þurfa allir að vera tilbúnir að taka þátt. Kannski hefði hann ekki þorað að gera þetta áður og það sama má segja um Sverri, Hjört og Hörð. Núna eru allir komnir á sama stað og það er mjög þægilegt fyrir manninn sem stígur fyrstur í pressuna að vita að maðurinn fyrir aftan hann er líka tilbúinn að fara alla leið."
Daníel Leó fyrir leik með landsliðinu.

Daníel Leó fyrir leik með landsliðinu.

Canon

Mynd: Matthías Már

Sýndi ótrúlegan karakter - „Fór að elska þann leiðangur"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sýndi ótrúlegan karakter - „Fór að elska þann leiðangur"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.