16.11.26 - 23:41
Brynjar Ingi Erluson
Xavi allt annað en sáttur - „Þetta var til skammar“

Xavi

Mynd: EPA

Xavi

Mynd: EPA
Spænski þjálfarinn Xavi leyndi ekki vonbrigðum sínum með frammistöðu sinna manna eftir 5-0 afhroðið gegn Þýskalandi í Þjóðadeildinni í kvöld.

TENGT EFNI
Klopp: Þetta var eiginlega bara alger klikkun
Hollendingar tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum keppninnar, en það skildi eftir sig ansi vont bragð að fá á sig fimm mörk, enda Holland ein af sterkustu fótboltaþjóðum Evrópu.
Vonbrigðin leyndu sér svo sannarlega ekki hjá Xavi, sem sagði frammistöðu sinna manna hreinlega til skammar.
„Ég er ótrúlega vonsvikinn og þetta er synd því ég var svo stoltur af leikmönnum fram að þessum leik. Það sem gerðist var ótrúlegt og mjög mikið áfall fyrir mig sem þjálfara.“
„Ég talaði við leikmennina og sagði þeim að við þurfum að breyta hugarfarinu. Við gátum ekki veitt þeim keppni því við fórum ekki eftir gildum okkar. Við getum ekki sætt okkur við það og verðum að breyta mörgu eftir þennan leik. Við þurfum leikmenn sem hafa andann í þetta.“
„Þetta var til skammar í dag. 99 prósent af þessum úrslitum er vegna gildanna. Við verðum líka að hrósa Þýskalandi því við vorum í miklum vandræðum vegna gæða þeirra,“ sagði hann.
Hollendingar voru án fyrirliðans Virgil van Dijk og miðjumannsins Frenkie De Jong, sem hafði einmitt borið fyrirliðabandið í síðasta leik í fjarveru Van Dijk.
Xavi vildi þó ekki kenna fjarveru þeirra um afhroðið.
„Það hefur ekkert að gera með það sem átti sér stað,“ sagði Xavi í lokin.