16.11.26 - 23:22
Brynjar Ingi Erluson
Aron spilaði í treyju númer 14 til heiðurs systur sinnar

Aron Einar ásamt fjölskyldunni í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Aron Einar ásamt fjölskyldunni í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Aron Einar Gunnarsson greindi frá ástæðunni fyrir því að hann ákvað að klæðast treyju númer 14 í sínum síðasta landsleik, þegar hann kom inn af bekknum í 3-0 sigri Íslands á Lúxemborg í kvöld.
Því hafði verið haldið fram að Aron hefði hafið landsliðsferilinn í treyju númer 14 árið 2008, en hann segir það ekki rétt.
Hann lék sinn fyrsta A-landsleik gegn Hvíta-Rússlandi í febrúar 2008, þá í treyju númer 6, sem hann klæddist einnig gegn Færeyjum mánuði síðar.
Aron var spurður út í valið á treyjunúmerinu í viðtali við Fótbolta.net og greindi þá frá því að hann hefði viljað heiðra minningu systur sinnar Tinnu Bjargar Malmquist, sem lést langt fyrir aldur fram árið 2023, aðeins fertug að aldri.
„Það er ekki svoleiðis. Ég byrjaði í númer 6 en ég spilaði í 14 til heiðurs systur minnar sem lést allt of snemma. Afmælisdagurinn hennar er 14. og það var ástæðan fyrir því að ég ákvað að heiðra minningu hennar,“ sagði Aron við Fótbolta.net
Einstaklega fallegur gjörningur hjá Aroni, sem kveður landsliðið eftir 113 landsleiki og fimm mörk. Hann jafnaði landsleikjametið í kvöld og deilir því nú með Birki Bjarnasyni, sem var einmitt samherji hans á bæði EM og HM.