Fotbolti.net
16.11.26 - 22:23
Brynjar Ingi Erluson

Robertson tók metið af Dalglish

Andy Robertson er sá leikjahæsti í sögu Skotlands

Andy Robertson er sá leikjahæsti í sögu Skotlands

Canon

Mynd: EPA

Andy Robertson, fyrirliði skoska landsliðsins, er orðinn leikjahæsti leikmaður í sögu liðsins, en hann setti metið í 4-0 tapi gegn Sviss í Þjóðadeildinni í kvöld.
Jafnaði leikjamet Kenny Dalglish - Skammt frá markametinu
TENGT EFNI

Jafnaði leikjamet Kenny Dalglish - Skammt frá markametinu

Skotinn jafnaði goðsögnina Kenny Dalglish í síðasta leik þegar hann lék sinn 102. landsleik og var síðan í byrjunarliðinu gegn Sviss í St. Gallen í kvöld.

Robertson lék flesta landsleiki sína á meðan hann var samningsbundinn Liverpool á árunum 2017 til 2026. Alls lék hann 82 landsleiki á þeim tíma, en hina 21 lék hann á meðan hann var hjá Hull og Tottenham.

Því miður varð lítið úr fögnuðinum hjá Robertson á þessum merku tímamótum, enda fengu Skotar 4-0 skell gegn Sviss og höfnuðu í þriðja sæti síns riðils í B-deildinni.

Áfanginn er engu að síður stórkostlegur fyrir vinstri bakvörðinn sem hefur nú skotið Dalglish aftur fyrir sig og skrifað nafn sitt í sögubækur skoska landsliðsins.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.