Fotbolti.net
18.01.19 - 19:00
Elvar Geir Magnússon

Marco Silva: Richarlison mun fara að skora aftur

Richarlison og Gylfi.

Richarlison og Gylfi.

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski sóknarmaðurinn Richarlison hjá Everton hefur verið að ganga í gegnum markaþurrð. Hann er markahæstur hjá liðinu á þessu tímabili, með níu mörk, en hefur ekki skorað í síðustu fimm leikjum.

Marco Silva hefur verið að spila Richarlison sem fremsta manni en ekki á vængnum. Hann hyggst ekki breyta því.
„Richarlison getur bæði spilað á vængnum og sem sóknarmaður. Nú er hann að spila sem fremsti maður. Ég veit að hann skorar ekki með sama millibili núna og hann gerði en hann mun fara að skora aftur," segir Silva.

„Hann hefur ekki skorað síðan á öðrum degi jóla en hann getur spilað sem fremsti maður, eins og Cenk Tosun og Dominic Calver-Lewin. Honum líður eins vel í þeirri stöðu og hann gerir á vængnum. Það er okkar að ákveða hvar hann spilar."

Everton heimsækir Southampton á morgun en liðið hefur aðeins unnið tvo af síðustu níu leikjum og ljóst að erfitt verður að landa Evrópusæti.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.