Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 18. janúar 2020 15:56
Ívan Guðjón Baldursson
Mynd: Munaði svona litlu að Tottenham hefði unnið
Mynd: Getty Images
Tottenham gerði markalaust jafntefli við Watford í hádegisleik enska boltans í dag.

Watford klúðraði vítaspyrnu á 70. mínútu en Tottenham komst ótrúlega nálægt því að stela sigrinum í uppbótartíma, þegar marktilraun Erik Lamela var bjargað á línu.

Ignacio Pussetto, sem er nýkominn til Watford og var nýbúið að skipta inn af varamannabekknum, bjargaði meistaralega af marklínunni.

Hér fyrir neðan má sjá mynd sem sýnir hversu litlu mátti muna að knötturinn hefði farið yfir marklínuna.


Athugasemdir
banner
banner
banner