Fotbolti.net
18.02.20 - 13:30
Magnús Már Einarsson

Meiðsli hjá Chelsea fyrir leikinn gegn Tottenham

N'Golo Kante.

N'Golo Kante.

Canon

Mynd: Getty Images

N'Golo Kante, miðjumaður Chelsea, verður væntanlega ekki með liðinu í mikilvægum leik gegn Tottenham á laugardaginn.

Kante meiddist eftir einungis tólf mínútur í tapinu gegn Manchester United í gær en Mason Mount leysti hann af hólmi.

Eftir leik staðfesti Frank Lampard, stjóri Chelsea, að Kante verði líklega fjarri góðu gamni gegn Tottenham á laugardag.
Óvíst er með þátttöku framherjans Tammy Abraham í þeim leik en hann var í stúkunni í gær vegna meiðsla.

Þá er ljóst að kantmennirnir Christian Pulisic og Callum Hudson-Odoi verða áfram á meiðslalistanum á laugardag en þeir hafa verið frá keppni að undanförnu.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.