Fotbolti.net
18.02.26 - 19:08
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Wolves og Arsenal: Saka áfram í holunni

Byrjunarlið Wolves og Arsenal: Saka áfram í holunni
Canon

Mynd: EPA

Botnlið Wolves tekur á móti toppliði Arsenal í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.
Vel heppnuð tilraun með Saka
TENGT EFNI

Vel heppnuð tilraun með Saka

Þar er helst að frétta að Bukayo Saka byrjar í holunni fyrir aftan fremsta mann líkt og í enska bikarnum um helgina. Þá eru Gabriel Martinelli og Noni Madueke áfram í byrjunarliðinu á sitthvorum kantinum en Viktor Gyökeres tekur stöðu Gabriel Jesus upp á topp.

Declan Rice og Martín Zubimendi koma aftur á miðjuna og fer David Raya aftur á sinn stað á milli stanganna. Þá gerir Mikel Arteta þrjár breytingar á varnarlínunni eftir bikarsigurinn, þar sem Jurriën Timber, Gabriel Magalhaes og Piero Hincapié byrja ásamt William Saliba.

Úlfarnir gera fjórar breytingar frá naumum sigri gegn Grimsby Town í bikarnum. Jose Sá, Hugo Bueno, Angel Gomes og Jean-Ricner Bellegarde koma inn í byrjunarliðið.

Wolves:Sa, Tchatchoua, Mosquera, S Bueno, Krejci, H Bueno, Andre, A Gomes, Mane, Bellegarde, Armstrong.
Varamenn: Johnstone, Doherty, Moller Wolfe, J Gomes, Arokodare, Lima, R Gomes, Rawlings, Edozie.

Arsenal: Raya, Timber, Saliba, Gabriel, Hincapie, Zubimendi, Rice, Saka, Madueke, Martinelli, Gyokeres.
Varamenn: Kepa, Mosquera, White, Jesus, Eze, Norgaard, Trossard, Calafiori, Lewis-Skelly.
Byrjunarlið Wolves og Arsenal: Saka áfram í holunni
Canon

Mynd: Wolves

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.