Fjölmiðlar í Grikklandi segja að Rafa Benítez sé á barmi þess að vera rekinn sem stjóri Panathinaikos.
Þessi fyrrum stjóri Real Madrid og Liverpool varð launahæsti stjóri í sögu grísku deildarinnar þegar hann var ráðinn í október. Hann hefur hinsvegar aðeins náð að skila sigri í 13 leikjum af 25 við stjórnvölinn.
Íslenski landsliðsmiðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason er meðal leikmanna Panathinaikos. Hann var ekki með í síðasta deildarleik vegna vöðvameiðsla en hafði borið fyrirliðabandið í tveimur leikjum þar á undan.
Panathinaikos er næstsigursælasta félag í sögu Grikklands en aðeins Olympiakos hefur unnið fleiri titla.

Panathinaikos er í fimmta sæti grísku deildarinnar, þó liðið hafi verið í sjöunda sæti þegar Benítez tók við þá hefur bilið í Meistaradeildarsætin aukist.
Sagt er að hann hafi næstu tvo leiki til að bjarga starfinu; Viktoria Plzen í Evrópudeildinni og OFI Crete í grísku deildinni.
Gríski miðillinn Sport24 segir að Panathinaikos hafi þegar verið í sambandi við Igor Biscan, fyrrum leikmann félagsins. Hann stýrði síðast Al-Ahli í Katar. Hann lék á sínum tíma hjá Liverpool, undir einmitt stjórn Benítez.
Athugasemdir