Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
   lau 18. apríl 2026 18:23
Brynjar Ingi Erluson
Landsleikjametið slegið í grátlegu tapi gegn Evrópumeisturunum
Eimskip
Úr leik Íslands og Englands í kvöld
Úr leik Íslands og Englands í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ísland 0 - 1 England
0-1 Alessia Russo ('21 )
Lestu um leikinn

Íslenska kvennalandsliðið tapaði fyrir Evrópumeisturum Englendinga, 1-0, í undankeppni HM á Laugardalsvelli í kvöld. Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði landsliðsins, setti nýtt landsleikjamet er hún spilaði 146. landsleik sinn.

Eins og kannski var við að búast voru Englendingar með öll völd á leiknum í fyrri hálfleiknum.

Englendingar höfðu verið að hóta marki í byrjun leiks og kom það fyrir rest er Alessia Russo kláraði af yfirvegun eftir frábæran sprett Lauren Hemp.

Vörn íslenska liðsins var mjög góð í leiknum og sérstaklega í fyrri hálfleik. Cecilía Rán Rúnarsdóttir var örugg í markinu og gerði vel þegar hún var kölluð til.

Sóknarleikurinn var betri í þeim síðari og má í raun segja að þetta hafi verið leikur tveggja hálfleik því Englendingar voru í nauðvörn allan síðari hálfleikinn.

Englendingar fengu tækifæri til þess að ganga frá leiknum þegar tuttugu mínútur voru eftir en Cecilía varði þá meistaralega frá Beth Mead sem átti hörkuskalla á markið. Þetta var hættulegasta færi þeirra í þessum hálfleik en Ísland tók síðan algerlega við.

Sandra María Jessen fékk tvö dauðafæri stundarfjórðungi fyrir leikslok. Hafrún Rakel Halldórsdóttir átti frábæran bolta inn á teiginn sem Glódís skallaði aftur fyrir sig og á Söndru sem var komin í dauðafæri en Hannah Hampton varði skotið. Boltinn fór aftur á Söndru sem setti síðan boltann yfir markið, en búið var að flagga rangstöðu.

Annað færið var mun betra en þá hljóp Sveindís upp að endamörkum, kom boltanum inn á teiginn á Söndru sem setti boltann framhjá Hampton, en stöngin var að þvælast fyrir áður en Diljá Ýr Zomers skaut boltanum sem fór af varnarmanni og rann síðan út í sandinn.

Ísland hætti ekki að pressa. Innköstin hennar Sveindísar héldu áfram að valda usla. Það kom inn í teiginn og datt síðan fyrir Alexöndru Jóhannsdóttur sem átti hörkuskot sem Hampton varði frábærlega.

Hampton alger bjargvættur fyrir Englendinga sem rétt náðu að halda út. Virkilega góð frammistaða hjá Íslandi og sérstaklega varnarlega, en vantaði smá heppni í sóknarleiknum til þess að landa stigi.

Leikurinn var auðvitað sögulegur hjá kvennalandsliðinu og Glódísi sem setti nýtt landsleikjamet. Hún jafnaði met Söru Bjarkar Gunnarsdóttur í leiknum gegn Úkraínu og eignaði sér síðan metið með leiknum í dag. Ótrúlegt afrek hjá Glódísi sem hefur verið klettur í vörn Íslands síðasta áratuginn.

Úrslitin í dag þýða að Ísland er áfram í þriðja sæti með þrjú stig en England með tólf stig eða fullt hús stiga eftir fjórar umferðir.
Slapp
banner
banner