Fotbolti.net
18.05.22 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

„Leit út eins og Bayern væri að fagna tíunda sæti"

„Leit út eins og Bayern væri að fagna tíunda sæti"
Canon

Mynd: Getty Images

Alexander Wehrle, framkvæmdastjóri Stuttgart, svaraði ummælum frá Uli Höness, forseta FC Bayern, í gær.

Höness byrjaði þetta orðastríð á því að tjá sig um fagnaðarlæti Stuttgart eftir að þeir rétt björguðu sér frá fallbaráttunni með sigurmarki í uppbótartíma.

„Það er eins og þeir í Stuttgart haldi að þeir hafi unnið Heimsmeistarakeppnina. Það eina sem gerðist er að þeir féllu ekki úr deildinni," sagði Höness.

Wehrle svaraði í sömu mynt: „Þegar maður horfir á fögnuðinn hjá Bayern þá heldur maður að þeir hafi endað í tíunda sæti frekar en að þeir séu að vinna tíunda titilinn í röð."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.