mið 18. maí 2022 12:30
Elvar Geir Magnússon
Man City líklegt til að gera tilboð í Cucurella
Marc Cucurella ætti að passa inn í leikstíl Man City.
Marc Cucurella ætti að passa inn í leikstíl Man City.
Mynd: Getty Images
Manchester City er líklegt til að reyna að fá Marc Cucurella frá Brighton í sumar. Spánverjinn hefur átt mjög gott fyrsta tímabil með Brighton og vakið áhuga Pep Guardiola.

Talið er að tilboð upp á um 35 milljónir punda gæti nægt til að landa vinstri bakverðinum.

Brighton keypti þennan 23 ára leikmann frá Getafe fyrir 15,4 milljónir punda en hann var ekki lengi að komast í uppáhald meðal stuðningsmanna.

Hann táraðist af gleði þegar hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir Brighton í 4-0 sigri gegn Manchester United í síðasta mánuði.

Vinstri bakvarðarstaðan hefur verið ákveðin vandræðastaða fyrir City. Oleksandr Zinchenko átti í vandræðum í þeirri stöðu í 2-2 jafntefli gegn West Ham síðasta sunnudag.

Cucurella myndi gefa liði Guardiola meira jafnvægi, hann er öflugur varnarlega og öruggur á boltann. Hann elskar að taka þátt í sóknarleiknum og á góðar fyrirgjafir. Hann ætti að aðlagast leikstíl City hratt og vel.

City hefur styrkt sóknarleikinn sinn með því að kaupa Erling Haaland frá Borussia Dortmund. Félagið er einnig líklegt til að reyna að fá miðjumann því Fernandinho er á förum og Ilkay Gundogan líklega líka.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner