Rogers orðaður við Chelsea - Mourinho vill Rashford - Arsenal opið fyrir því að selja Jesus
   mán 18. maí 2026 20:57
Ívan Guðjón Baldursson
England: Havertz gerði dýrmætt sigurmark
Mynd: EPA
Arsenal 1 - 0 Burnley
1-0 Kai Havertz ('37)

Titilbaráttulið Arsenal tók á móti Burnley í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni og þurftu heimamenn sem stærstan sigur í titilbaráttunni.

Mikel Arteta þjálfari stillti upp sóknarsinnuðu byrjunarliði og fengu lærlingar hans góð færi í fyrri hálfleiknum en tókst aðeins að skora eitt mark. Þar var Kai Havertz á ferðinni eftir hornspyrnu frá Bukayo Saka.

Leandro Trossard átti skot í stöng, fyrirgjöf frá Saka var nálægt því að enda í netinu og svo átti Saka skot sem fór rétt framhjá en boltinn rataði ekki í netið. Varnarmenn Burnley voru þar að auki duglegir að kasta sér fyrir marktilraunir Arsenal-manna.

Síðari hálfleikurinn hélt áfram í svipuðu fari nema að Arsenal tókst ekki að skapa jafn mikið af færum. Leikurinn róaðist niður og tókst gestunum í liði Burnley að koma sér í hálffæri en hvorugt lið bætti marki við leikinn, svo lokatölur urðu 1-0.

Arsenal er núna aðeins einum sigri frá því að tryggja sinn fyrsta Englandsmeistaratitil síðan 2004. Arsenal heimsækir nágranna sína í Crystal Palace í lokaumferð deildartímabilsins.

Arsenal er í titilbaráttu við Manchester City sem heimsækir Bournemouth í afar spennandi slag annað kvöld.
Slapp
banner