Fotbolti.net
18.05.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Lagði upp hundraðasta markið í síðasta heimaleiknum

Lagði upp hundraðasta markið í síðasta heimaleiknum
Canon

Mynd: EPA

Franski sóknarmaðurinn Antoine Griezmann spilaði sinn síðasta heimaleik með spænska liðinu Atlético Madríd í gær og kvaddi hann með sögulegri stoðsendingu.
Griezmann er markahæsti og einn besti leikmaður í sögu Atlético Madríd.

Hann hefur borið liðið á herðum sér í langan tíma en hann mun kveðja eftir tímabilið og halda til Orlando City í MLS-deildinni í Bandaríkjunum í sumar.

Frakkinn, sem er 35 ára gamall, spilaði síðasta heimaleikinn gegn Girona í gær og lagði upp sigurmarkið fyrir Ademola Lookman eftir aðeins tuttugu mínútna leik.

Það var 100. stoðsending Griezmann og það í 500. leiknum fyrir félagið, en hann er aðeins sá þriðji til þess að ná þeim áfanga á eftir Jan Oblak og Koke.

Ofan á það er hann með 212 mörk fyrir félagið í öllum keppnum, 53 mörkum á undan Luis Aragones sem hélt metinu í tæp 50 ár áður en Griezmann tók það af honum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.